10júní

Ađalfundur Vefarar

Annað kvöld, fimtudaginn 11. júní klukkan 20:00, er aðalfundur Vefaraættarinnar-niðjasamtaka. Fundurinn verður haldinn í sal í Þjóðskjalasafninu, Laugavegi 162; gengið er inn um portið og til hægri að dyrum og síðan upp á efstu hæð.

Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður í máli og myndum sagt frá hátíðarhöldunum austur á Héraði þegar Minningartaflan um Jón vefara og Þóreyju var afhent Minjasafni Austurlands 30. júní 2007. Auk þess verður því lýst hvernig vefnaði var háttað fyrir rúmum tvö hundruð árum. En síðast en ekki síst verður drukkið kaffi og rætt um framtíðarstefnu samtakanna. Hver eiga að vera næstu verkefni?

Fyrir hönd stjórnar Vefaraættarinnar-niðjasamtaka,
Jón Hálfdánarson
10. júní 2009 klukkan 13:22
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
29júní

Tíminn líđur..

.. og nú fer alveg að koma að afhendingu minningartöflunnar á Egilsstöðum!

Vefarahátíðin er núna um helgina og ég hef sterkar heimildir fyrir því að fólk sé strax farið að flykkjast á staðinn. Vil ég hvetja fólk til að hafa með sér reiðufé til að borga fyrir rútuna og matinn því ekki er víst að posi verði á svæðinu.

Svo sjáumst við öll í (vonandi) góðu veðri fyrir austan um helgina!
29. júní 2007 klukkan 16:15
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
29júní

Tíminn líđur..

.. og nú fer alveg að koma að afhendingu minningartöflunnar á Egilsstöðum!

Vefarahátíðin er núna um helgina og ég hef sterkar heimildir fyrir því að fólk sé strax farið að flykkjast á staðinn. Vil ég hvetja fólk til að hafa með sér reiðufé til að borga fyrir rútuna og matinn því ekki er víst að posi verði á svæðinu.

Svo sjáumst við öll í (vonandi) góðu veðri fyrir austan um helgina!
29. júní 2007 klukkan 16:14
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
12júní

Texti minningartöflunnar

Komið þið sæl,

Viðgerð minningartöflunnar er nú lokið, og má sjá mynd af henni hérna. Hún verður afhent Minjasafni Austurlands þann 30. júní næstkomandi og niðjasamtökin skipuleggja dagskrá að því tilefni fyrir austan.

Búið er að rýna í texta minningartöflunnar, en þar er saga þeirra hjóna rakin, lífshlaup og mannkostir. Gunnlaugur Haraldsson rýndi í textann og skrifaði hann upp.

Textinn hefst á þessum orðum:


I Lofsverða Minningu
Merkis Hjónanna 
Vefara Jóns ÞórsteinsSonar Skjølds
og Þoreÿar Jonsdottur 


Textinn er í heild hér hægra megin á síðunni.

Hrefna

 

12. júní 2007 klukkan 12:32
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
08júní

Bréf til Vefara

Þetta bréf hefur borist/er að berast til allra vefara sem eru skráðir í samtökin:
                                                                                                           
Kæri Vefari!
Afkomendur Jóns vefara Þorsteinssonar og Þóreyjar Jónsdóttur brugðust vel við þeirri beiðn­i að styrkja viðgerð á minningartöflu þeirra hjóna.  Nú er því verki lokið og bíður taflan þess að verða afhent Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum til varðveislu.  Sú athöfn fer fram 30. júní næstkomandi. 

Vefaraættin - niðjasamtök (kt. 691206-0410) voru formlega stofnuð á fundi í Haga­skóla 14. maí 2007.  Á fundinum vorum við undirrituð kosin í stjórn og varastjórn.  355 manns lögðu fram fé til söfnunarinnar og teljast þeir nú félagar í niðja­sam­tökunum.  Í þeim geta verið allir þeir af Vefaraætt sem greiða þeim árgjald, en á aðalfundinum var það ákveðið 1000 kr, og verður það innheimt í fyrsta sinn á næsta ári.

Samtökin halda heimasíðuna:  
http://vefari.bloggar.is og er þar að finna ýmsan fróðleik og fréttir frá starfi samtakanna. 

Samtökin hafa netfangið
vefarar@gmail.com og viljum við biðja þig að senda tölvu­póst­fang þitt þangað, notir þú slík samskipti, því það auðveldar okkur að halda sam­bandi við þig og senda þér upplýsingar.

Eins og fyrr segir verður Minningartaflan afhent laugardaginn 30. júní næstkomandi.  Þann dag verður haldin Vefarahátíð austur á Héraði sem við hvetjum þig (og maka) til að taka þátt í og láta aðra Vefara vita um.  Dagskráin verður í helstu dráttum þessi:

Hátíðin hefst um morguninn með ferð um Vefaraslóðir (sjá kort á bakhlið).  Leiðsögumenn verða fjölfróðir og staðkunnugir Vefarar.  Rúturnar leggja af stað frá Söluskálanum á Egils­­stöðum klukkan 9:40. 
Ekið verður inn Velli og upp í Fljótsdal og sögð skil á sögustöðum með aðaláherslu á vegferð Vefara fyrr og síðar.  Áð verður á Valþjófsstað.  Gengið til kirkju og kirkjugarðs (legstaður Þór­eyjar).  Þaðan haldið í Skriðuklaustur og skoðaður fornleifauppgröftur klaustursrústanna undir leiðsögn fornleifafræðinga.  Á Skriðuklaustri geta menn snætt nesti sem þeir tækju með sér eða keypt sér veitingar.
Ekið út Fell og Hróarstungu og yfir brú hjá Lagarfossi í Hjaltastað (legstaður Jóns vefara).  Síðan er horft heim undir Kóreks­staði þar sem Vefarahjónin bjuggu lengst af.  Að því búnu verður ekið inn í Egilsstaði.
Klukkan þrjú síðdegis hefst afhendingarathöfnin í Valaskjálf.  Flutt verða ávörp og sögu­brot, en síðan verður gengið út í Minjasafnið (næsta hús).
Klukkan sex hefst grillveisla og gleðskapur með varðeldi í Stóra-Sandfelli í mynni Skrið­dals.  Þar er gott tjaldsvæði sem Vefarar hafa tekið á leigu sem aðal­samastað og til eigin afnota að þessu tilefni.  Þar geta allir dvalið sem kjósa að gista í tjöldum (600 kr fyrir nótt á mann eldri en 16 ára).

Öllum kostnaði við rútuferð og grillveislu verður stillt í hóf.  Til að auðvelda okkur skipulagninguna biðjum við þig að láta okkur vita fyrir 17. júní hvort þú hyggir á þátttöku með því að senda okkur tölvupóst á netfangið
vefarar@gmail.com eða hringja í Þorvarð Örnólfsson, síma  587 1633 eða farsíma 897 1632.  Þegar nær dregur verða nánari upp­lýsingar um hátíðina birtar á heimasíðu samtakanna.

Með Vefarakveðju!

Jón Hálfdanarson, Sigþrúður Zophoníasdóttir, Kristjón Kolbeins, Guðbjörg Þor­varðardóttir, Guttormur P. Einarsson, Bergljót Haraldsdóttir, Júlíus Sæberg Ólafsson
08. júní 2007 klukkan 11:59
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
01júní

Allt ađ gerast!


Jæja, þá er vefaraættin og þessi heimasíða komin með netfangið
vefarar@gmail.com. Allar fyrirspurnir og ábendingar ættu að berast þangað, þá get ég annað hvort svarað þeim eða komið þeim áfram til réttra aðila.

Annars hefur ýmsilegt gerst undanfarnar vikur.
-Stofnfundur var haldinn í Hagaskóla þann 14. maí síðastliðinn þar sem samtökin voru formlega stofnuð og ný stjórn kosin. Væntanlegar inn á þessa síðu eru bæði myndir frá fundinum og stofnsamþykktin.
-Auk þess er taflan núna tilbúin og verður flutt til Egilsstaða í næstu viku.
-Dagskráin fyrir þann 30. júní þegar taflan verður formlega afhent minjasafninu er að verða til og hvet ég alla vefara til að láta sjá sig fyrir austan þessa helgi, kynnast öðrum vefurum, grilla og fara í rútuferð!

Kolbrún Þóra vefsíðuvefari

01. júní 2007 klukkan 13:46
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
13maí

STOFNFUNDUR!

Stofnfundur niðjasamtakanna mun fara fram í:


Hagaskóla í Reykjavík

mánudaginn 14. maí n.k.

kl 20:00

-stjórnin
13. maí 2007 klukkan 22:16
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
17apríl

AĐALFUNDI VERĐUR FRESTAĐ FRAM Í MAÍ



NÁNARI UPPLÝSINGAR KOMA HÉR Á SÍÐUNNI MJÖG FLJÓTLEGA!!!!
17. apríl 2007 klukkan 08:59
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
29janúar

Samţykktir fyrir Vefaraćttina-niđjasamtök


Komið þið sæl,

Gengið var frá formlegum samþykktum fyrir samtök Vefaraættarinnar þann 28. desember síðastliðinn.

Þær má skoða undir tenglinum "myndir", en þar eru þær skannaðar með undirskriftum.  Þær gilda fram að aðalfundi sem áætlað er að halda í mars næstkomandi. 

með vefarakveðju,
Hrefna Róbertsdóttir 
 (Pétursniðji)
 
29. janúar 2007 klukkan 04:58
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd
30desember

Fundur framkvćmdastjórnar fjáröflunarnefndar


Komin er inn fundargerð frá 27. des. síðastl.

bestu kveðjur
Hrefna
30. desember 2006 klukkan 03:11
Kolbrún Ţóra Eiríksdóttir
Engin athugasemd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur